Skilmálar og Skilyrði: Fanta Xbox
1. Kynningaraðili: Þessi Fanta Xbox leikur („Leikurinn“) er skipulagður af Coca‑Cola Europacific Partners Ísland („Kynningaraðili“).
2. Hverjir mega taka þátt: Leikurinn er eingöngu opinn þeim sem eru með skráð lögheimilisfang á Íslandi. Aldurstakmark er 18 ára. Lögaðilar geta ekki takið þátt í leiknum og engin verðlaun verða veitt til lögaðila. Starfsmenn og stjórnendur lögaðila sem og starfsmenn og stjórnendur samstarfsaðila, umboðsmanna eða ráðgjafa eru ekki gjaldgengir þátttakendur í leiknum. Sama gildir um hvern þann sem er hluti af nánustu fjölskyldu starfsmanns einhvers af ofangreindum.
3. Samþykki þessara skilmála og skilyrða: Með þátttöku í leiknum samþykkja þátttakendur og vinningshafar að þeir hafi lesið og skilið skilmála og skilyrði og samþykkja að vera bundin þessum skilmálum og skilyrðum sem og túlkun kynningaraðila á þeim. Ákvarðanir kynningaraðila varðandi hvers konar ágreining eru endanlegar og bindandi. Kynningaraðili áskilur sér rétt til að breyta án fyrirvara eða tilkynninga þessum skilmálum, verðlaunum og fresta eða hætta við leikinn, verðlaunin eða hvaða aðra þætti leiksins, af hvaða ástæðu sem kynningaraðili metur sem þarfa án nokkurra bóta. Nöfn sem notuð eru til þátttöku í leiknum þurfa að samsvara nöfnum á skilríkjum og/eða vegabréfi þátttakanda.
Leiktímabil:
4. Leikurinn hefst 23. Febrúar 2026 og lýkur klukkan 23:59 þann 31. Mars 2026 („Leiktímabil“). Innsendingar sem berast utan þess tíma verða ekki teknar gildar. Innsendingar teljast mótteknar við móttöku, ekki innsendingu. Ókláraðar, ónákvæmar, óskýrar, gallaðar eða óskiljanlegar innsendingar verða ekki taldar gjaldgengar og þar með ógildar til þátttöku. Sigurvegarar verða tilkynntir umleið og hver hefur slegið inn sinn vinningskóða og skannað inn kvittun.
Lýsing á verðlaunum:
5. Þátttakendur eiga möguleika á að vinna þráðlaus Xbox heyrnatól, PC Game Pass leikjapassa frá Xbox og/eða Sea of Thieves leikjakóða. Heildarfjöldi vinninga eru 3505.
7. Ef af lagalegum eða öðrum ástæðum vinningshafi getur ekki veitt verðlaunum viðtöku verður þátttakan dæmd ógild og nýr vinningshafi dreginn út.
Virkni leiks:
8. Til að taka þátt þarf viðkomandi að fylla út alla reiti á þátttökusíðu með sínum upplýsingum, auk slá inn vinningskóða og ef að við á, láta mynd fylgja af kvittun fyrir kaup á vörunni.
9. Leyfilegt er að senda inn einu sinni á dag fyrir hvern verðlaunaflokk.
10. Þáttakandi getur að hámarki unnið ein verðlaun úr hverjum verðlaunaflokki.
Útdráttur:
11. Dregið verður af handahófi úr öllum gildum innsendingum og vinningshafar þurfa sjálfir að sækja sinn vinning með því að slá inn vinningskóðann á innlausnarsíðu Xbox. Staðfesting vinningskóði verður sendur á vinningshafa í tölvupósti. Ef um heyrnatól er að ræða ber vinningshafa sjálfum að hafa samband við kynningaraðila til að fá sinn vinning afhentan.
12. Vinningshafi þarf að innleysa sinn vinning (PC Game Pass og Sea of Thieves leikjakóða) með vinningskóða fyrir dagsetningu 30.Júní 2026 þar sem kóðinn rennur út eftir þann dag.
13. Persónuvernd gagna: Öll vinnsla persónulegra gagna og upplýsinga í leiknum er í samræmi við persónuverndarstefnu CCEP. Hana má nálgast á vefsíðu okkar www.ccep.is