Skilmálar og Skilyrði: FIFA leikur

1. Kynningaraðili: Þessi FIFA leikur Coca‑Cola („Leikurinn“) er skipulagður af Coca‑Cola Europacific Partners Ísland („Kynningaraðili“).  

 
2. Hverjir mega taka þátt: Leikurinn er eingöngu​ opinn þeim sem eru með skráð lögheimilisfang á Íslandi. Aldurstakmark er 16 ára. Lögaðilar geta ekki takið þátt í leiknum og engin verðlaun verða veitt til lögaðila. Starfsmenn og stjórnendur lögaðila sem og starfsmenn og stjórnendur samstarfsaðila, umboðsmanna eða ráðgjafa eru ekki gjaldgengir þátttakendur í leiknum.  Sama gildir um hvern þann sem er hluti af nánustu fjölskyldu starfsmanns einhvers af ofangreindum.

 
3. Samþykki þessara skilmála og skilyrða: Með þátttöku í leiknum samþykkja þátttakendur og vinningshafar að þeir hafi lesið og skilið skilmála og skilyrði og samþykkja að vera bundin þessum skilmálum og skilyrðum sem og túlkun kynningaraðila á þeim. Ákvarðanir kynningaraðila varðandi hvers konar ágreining eru endanlegar og bindandi. Kynningaraðili áskilur sér rétt til að breyta án fyrirvara eða tilkynninga þessum skilmálum, verðlaunum og fresta eða hætta við​ leikinn, verðlaunin eða hvaða aðra þætti leiksins, af hvaða ástæðu sem kynningaraðili metur sem þarfa án nokkurra bóta. Nöfn sem notuð eru til þátttöku í leiknum þurfa að samsvara nöfnum á skilríkum og/eða vegabréfi þátttakanda. 
 
 
Leiktímabil:  
 
4. Leikurinn hefst 18. maí 2026​ og lýkur klukkan 23:59 þann 19. júlí 2026 („Leiktímabil“). Innsendingar sem berast utan þess tíma verða ekki teknar gildar. Innsendingar teljast mótteknar við móttöku, ekki innsendingu.​​ Ókláraðar, ónákvæmar, óskýrar, gallaðar eða óskiljanlegar innsendingar verða ekki taldar gjaldgengar og þar með ógildar til þátttöku. Vinningshafar fá upplýsingar um vinning samstundis við þátttöku í leiknum. 
 
Lýsing á verðlaunum:

5. Þátttakendur eiga möguleika á að vinna alls 10 FIFA fótbolta. Verðmæti hvers vinning er metið á um 10.000 kr.

6. Vinningar verða ekki greiddir út í reiðufé og ekki er heimilt að framselja vinning til þriðja aðila.

7. Vinningshafar þurfa að sækja vinning sinn á skrifstofu Coca‑Cola Europacific Partners Ísland, Stuðlahálsi 1, 110 Reykjavík, innan þess frests sem kynningaraðili tilgreinir. Kynningaraðili sér ekki um sendingu vinninga nema annað sé sérstaklega ákveðið.

8. Ef af lagalegum eða öðrum ástæðum vinningshafi getur ekki veitt verðlaunum viðtöku verður þátttakan dæmd ógild og nýr vinningshafi dreginn út. 
 
 

Virkni leiks:

9. Til að taka þátt þarf viðkomandi að fylla út alla reiti á þátttökusíðu með sínum upplýsingum og senda inn.

10. Eftir innskráningu getur þátttakandi tekið þátt í leiknum og fær strax upplýsingar um hvort viðkomandi hafi unnið vinning (“instant win”)

11. Leyfilegt er að senda inn einu sinni á dag fyrir hvern verðlaunaflokk. 

 

Vinningshafar/tilkynningar: 

12. Vinningar eru veittir samstundis með sjálfvirkum hætti meðal gildra þátttakenda á leiktímabilinu

13. Vinningshafar fá staðfestingu á vinningi strax við þátttöku og kunna jafnframt að fá frekari upplýsingar sendar með tölvupósti eða í gegnum þann aðgang sem notaður var við þátttöku.

14. Ef vinningshafi svarar ekki eða sækir ekki vinning innan þess frests sem kynningaraðili tilgreinir áskilur kynningaraðili sér rétt til að fella vinning niður 
 
15. Persónuvernd gagna: Öll vinnsla persónulegra gagna og upplýsinga í leiknum er í samræmi við persónuverndarstefnu CCEP. Hana má nálgast á vefsíðu okkar www.ccep.is