
Skilmálar og Skilyrði: Njóttu Coca‑Cola | Share a Coca‑Cola
1. Kynningaraðili: Þessi Coca‑Cola Share a Coke leikur („Leikurinn“) er skipulagður af Coca‑Cola Europacific Partners Ísland („Kynningaraðili“).
2. Hverjir mega taka þátt: Leikurinn er eingöngu opinn þeim sem eru með skráð lögheimilisfang á Íslandi. Aldurstakmark er 16 ára. Lögaðilar geta ekki takið þátt í leiknum og engin verðlaun verða veitt til lögaðila. Starfsmenn og stjórnendur lögaðila sem og starfsmenn og stjórnendur samstarfsaðila, umboðsmanna eða ráðgjafa eru ekki gjaldgengir þátttakendur í leiknum. Sama gildir um hvern þann sem er hluti af nánustu fjölskyldu starfsmanns einhvers af ofangreindum.
3. Samþykki þessara skilmála og skilyrða: Með þátttöku í leiknum samþykkja þátttakendur og vinningshafar að þeir hafi lesið og skilið skilmála og skilyrði og samþykkja að vera bundin þessum skilmálum og skilyrðum sem og túlkun kynningaraðila á þeim. Ákvarðanir kynningaraðila varðandi hvers konar ágreining eru endanlegar og bindandi. Kynningaraðili áskilur sér rétt til að breyta án fyrirvara eða tilkynninga þessum skilmálum, verðlaunum og fresta eða hætta við leikinn, verðlaunin eða hvaða aðra þætti leiksins, af hvaða ástæðu sem kynningarðili metur sem þarfa án nokkurra bóta. Nöfn sem notuð eru til þátttöku í leiknum þurfa að samsvara nöfnum á skilríkjum og/eða vegabréfi þátttakanda.
Leiktímabil:
4. Leikurinn hefst 1. maí 2025 og lýkur klukkan 23:59 þann 31. ágúst 2025 („Leiktímabil“). Innsendingar sem berast utan þess tíma verða ekki teknar gildar. Innsendingar teljast mótteknar við móttöku, ekki innsendingu. Ókláraðar, ónákvæmar, óskýrar, gallaðar eða óskiljanlegar innsendingar verða ekki taldar gjaldgengar og þar með ógildar til þátttöku. Sigurvegarar verða tilkynntir reglulega (1x-4x í mánuði) á meðan leik stendur.
Lýsing á verðlaunum:
5. Þátttakendur eiga möguleika á að vinna ferð fyrir upplifanir frá samstarfsaðilum, merktar Coca‑Cola vörur og merktan varning. Heildarfjöldi vinninga eru 620.
7. Ef af lagalegum eða öðrum ástæðum vinningshafi getur ekki veitt verðlaunum viðtöku verður þátttakan dæmd ógild og nýr vinningshafi dreginn út.
Virkni leiks:
8. Til að taka þátt þarf viðkomandi að fylla út alla reiti á þátttökusíðu með sínum upplýsingum og senda inn.
9. Leyfilegt er að senda inn einu sinni á dag fyrir hvern verðlaunaflokk.
Útdráttur:
10. Dregið verður af handahófi úr öllum gildum innsendingum og eingöngu haft samband við vinningshafa innan 5 daga frá lokum leiktímabils.
11. Þegar vinningshafa hefur verið tilkynnt um vinning í leiknum hefur viðkomandi 5 daga til að svara áður en vinningur verður dæmdur ógildur og nýr vinningshafi verður dreginn út.
12. Persónuvernd gagna: Öll vinnsla persónulegra gagna og upplýsinga í leiknum er í samræmi við persónuverndarstefnu CCEP. Hana má nálgast á vefsíðu okkar www.ccep.is